Gullverðlaunahafinn Mazda CX-3

Mazda CX-3 hlaut gullverðlaun í flokki jepplinga í vali um Bíl ársins 2016 á Íslandi.

Mikil eftirspurn hefur verið eftir Mazda CX-3 á heimsvísu og er Ísland þar engin undantekning þar sem hér hefur myndast biðlisti. Nú þegar eru ríflega 80 bílar seldir og þar af flestir sérpantaðir.

Það hefur aldrei verið á markaðnum bíll eins og Mazda CX-3. Hann sameinar jeppa og lipran borgarbíl sem er sniðinn að þínum lífstíl. Mazda CX-3 líkist hinum stærri Mazda CX-5 AWD jeppa í útliti en á þó meira sameiginlegt með liprum borgarbíl.

Mazda CX-3 er fáanlegur framhjóla- eða fjórhjóladrifinn en báðar útfærslur státa af fádæma góðu veggripi og aksturseiginleikum.