MAZDA MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ

Nú er Mazda með 5 ára ábyrgð
Nú er Mazda með 5 ára ábyrgð

BRIMBORG BÝÐUR NÚ ALLA NÝJA MAZDA BÍLA MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ. ÁBYRGÐIN ER VÍÐTÆK VERKSMIÐJUÁBYRGÐ SEM GILDIR FYRIR FÓLKSBÍLA MAZDA.

Mazda með 5 ára ábyrgð. Lægri rekstrarkostnaður, meira öryggi, hærra endursöluverð og hraðari endursala.

Með reglulegri þjónustu og 5 ára ábyrgð nýrra Mazda bíla tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu. Til að viðhalda ábyrgðinni skv. ferli framleiðanda eins og lýst er í eiganda og þjónustuhandbók bílsins þarft þú aðeins að koma á 6 mánaða eða 10.000 km fresti í olíu- og síuskipti og árlega eða á 20.000 km fresti í þjónustu- og yfirbyggingskoðun hvort sem á undan kemur tími eða km. Viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar annast bæði almenna þjónustu og viðgerðir sem falla undir ábyrgð.

Þjónustuskoðanir Mazda bíla eru á hagstæðu verði og við gerum þjónustuheimsóknina eins einfalda og kostur er. Við minnum þig á þegar nær dregur og þú velur tíma og bókar á netinu eins og þér hentar.

5 ára Mazda ábyrgð tók gildi 15.3.2020 en fyrir þann tíma er ábyrgð Mazda bifreiða 3 ár skv. skilmálum.

Forsendur ábyrgðar
Ábyrgðarskilmála má finna í eiganda- og þjónustuhandbók bílsins ásamt viðaukaskilmálum sem farið er vel yfir við afhendingu á nýja Mazda bílnum.

Almennt hefur kaupandi rétt samkvæmt íslenskum lögum til að bera fram kvörtun um galla í allt að tvö ár frá afhendingu nýju bifreiðarinnar en með réttu þjónustueftirliti skv. skilmálum framlengist verksmiðjuábyrgðin í allt að 5 ár eða að 100.000 km.

Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með nýja Mazda bílinn í reglubundið þjónustueftirlit hjá Brimborg eða hjá viðurkenndum þjónustuaðilum samkvæmt staðli framleiðanda. Forsendur ábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit, olíu- og síuskipti á 6 mánaða eða 10.000 km fresti og þjónustuskoðun árlega eða á 20.000 km fresti hvort sem kemur á undan tími eða km. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti. 

Viðgerðir sem falla undir ábyrgð
Þú ferð með Mazda bílinn þinn ásamt eiganda- og þjónustuhandbók til viðurkennds þjónustuaðila Mazda. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Mazda geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.

Panta tíma í ábyrgðarviðgerð
Þú getur pantað tíma í ábyrgðarviðgerð á verkstæði Mazda hér á vefnum. Þú færð svar um hæl og síðan minnum við þig á tímann fjórum dögum áður en þú átt að mæta og aftur minnum við á daginn áður. Þú finnur lausan tíma, bókar tíma, afbókar eða bókar fyrirspurn fyrir verkstæði Mazda hér.

Upplifðu einstaka tilfinningu með Mazda