Mazda ábyrgð
Mazda ábyrgð
---
5 ÁRA ÁBYRGÐ OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
Brimborg býður alla nýja Mazda bíla sem keyptir eru hjá Brimborg með 5 ára ábyrgð eða að 100.000 km. hvort sem á undan kemur km fjöldi eða tími og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð. Rafbíllinn Mazda6e er með 6 ára ábyrgð eða að 150.000 km, hvort sem kemur á undan km fjöldi eða tími. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir fólksbíla Mazda. Mazda bílar sem ganga að öllu leiti (100% hreinir rafbílar) eða einhverju leiti fyrir rafmagni (tengiltvinn rafbílar) og eru þ.a.l. með drifrafhlöðu eru með 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu eða að 160.000 km, hvort sem á undan kemur tími eða km fjöldi. Ábyrgð drifrafhlöðunnar miðast við að hleðslugeta drifrafhlöðunnar fari ekki undir 70%.
---
SKILMÁLAR
Skyldur eiganda bíls. Almennt er ábyrgð Mazda framleiðandans 3 ár eða að 100.000 km en Brimborg bætir við tveim árum skv. viðaukaskilmálum og er því ábyrgðin allt að 5 ár eða að 100.000 km. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda og Brimborgar. Með reglulegri þjónustu og viðtækri verksmiðjuábyrgð nýrra Mazda bíla frá Brimborg tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.
Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að viðhalda bifreiðinni samkvæmt ferli framleiðanda eins og lýst er í eiganda og þjónustuhandbók bílsins. Mikilvægt er að fylgja þjónustunni. Mæta þarf árlega eða á 20.000 km fresti í þjónustu- og yfirbyggingarskoðun hvort sem á undan kemur tími eða km. Einnig mælir Mazda með milliskoðun (fyrir olíuskipti) á bílum sem ganga að öllu leiti eða að hluta til fyrir eldsneyti á 6 mánaða eða 10.000 km fresti eftir því hvort kemur á undan km eða tími. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti. Við afhendingu nýrra bifreiðar fer söluráðgjafi yfir þjónustuyfirlit bifreiðarinnar. Til viðbótar við almenna skilmála gefur Brimborg út viðaukaábyrgð þar sem fram koma viðbótarréttindi og það sem er undanþegið viðbótarréttindum sem söluráðgjafi fer einnig yfir við afhendingu. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti. Athygli er vakin á því að 5 ára ábyrgð Mazda með viðaukaskilmálum tók gildi frá 28.10.2020-Fyrir þann tíma var var 3 ára ábyrgð eða að 100.000 km á Mazda bifreiðum.
Bilun sem rekja má til breytinga á bifreiðinni, notkunar á rangri olíu, röngum vara- eða íhlutum, skorts á viðhaldi eða röngu viðhaldi telst ekki galli og fellur því ekki undir kvörtunarréttinn eða framlengda verksmiðjuábyrgð. Óbeinn kostnaður, hagnaðar- eða tekjutap hjá eiganda, flutningur, dráttur, sími, gisting, eignatjón eða glötuð verðmæti eru ekki bætt og falla ekki undir kvörtunarréttinn.
Viðbótarréttindi vegna framlengds ábyrgðartíma frá Brimborg er háð eftirfarandi, ófrávíkjanlegum, skilyrðum:
· Að mætt sé með bifreiðina í reglulega þjónustu og viðhald á þjónustuverkstæði Brimborgar eða hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Brimborgar frá nýskráningardegi og út ábyrgðartíma skv. fyrirmælum framleiðanda sem koma fram í í þjónustuyfirliti frá framleiðanda /þjónustu- og eigandahandbók. Kostnaður vegna reglulegrar þjónustu og viðhalds er ávallt greiddur af eiganda bifreiðarinnar.
· Bilun sé ekki hægt að rekja til ytri orsaka og/eða náttúrufyrirbæra, óeðlilegrar notkunar eða misbeitingar.
· Ekki hafi átt sér stað vanræksla af ásettu ráði eða vegna vítaverðs gáleysis sem sé ástæða bilunar.
· Skráning þjónustuskoðana og viðhalds sé sannarlega skráð í upplýsingakerfi Brimborgar, þjónustubók bílsins eða gagnagrunn framleiðanda eftir því sem við á eða lögmætum reikning viðurkennds þjónustuverkstæðis framvísað.
· Þessi viðbótarréttur gildir eingöngu á Íslandi og gildir eingöngu um bíla sem fluttir eru inn af Brimborg ehf.
· Viðbótarréttur fellur niður ef ekki er mætt á réttum tíma í þjónustuskoðun sem gildir bæði um akstur og tíma. Það er alfarið á ábyrgð eiganda ökutækis að mæta á réttum tíma.
Eftirtalið er undanþegið viðbótarréttindum:
Viðhaldshlutir sem ætlað er að skipta um eða fylla á reglulega á líftíma bíls, stillingar, upplitun, sprungur eða aflögun vegna eðlilegrar notkunar og aldurs. Rafgeymar, fjarstýringar, þurrkublöð, ljósabúnaður, hljómflutningstæki, skjáir, lakk, rúður, rakaskemmdir vegna vatnsleka, afgas- og pústkerfi þar með talið sótagnasíur, nemar og hvarfakútur, jafnvægisstangir og tengi, stýrisendar, hlífðarhosur, demparar, kúplingsdiskur, kúplingspressa og lega, hleðslukaplar og aukahlutir settir í hérlendis og eiga ekki uppruna sinn hjá framleiðanda bifreiðarinnar.
Mikilvæg ábending frá Brimborg
Brimborg vill benda á mikilvægi þess að eigandi fylgist reglulega með eftirfarandi atriðum á milli þjónustuskoðana þ.e. vélarolíu, kælivökva, hemlavökva, loftþrýstingi í dekkjum og ljósabúnaði.


