Mazda CX-30
- Fágun og þægindi

Mazda CX-30

Verð frá 4.790.000 kr.
Eyðsla frá 6,0 l/100
CO₂ losun frá 134 g/km

Mazda CX-30 auðgar lífstíl þinn.  Hönnunin er fáguð og efnisval fyrsta flokks. Einstök þægindi fyrir farþega eru í fyrirrúmi. Hönnunin er dásömuð af sérfræðingum um allan heim og til að mynda hefur CX-30 unnið hin virtu Red Dot hönnunarverðlaun. 

Mazda CX-30 er sannkallaður lúxus að utan sem innan.

Fjórhjóla- eða framdrif

Mazda CX-30 er búinn annars vegar framhjóladrifi með spólvörn eða alsjálfvirku fjórhjóladrifi. 

i-Activ fjórhjóladrif Mazda er búið fjölda skynjara sem hjálpa þér að halda fullkominni stjórn og drifgetu. Hvort sem þú ert á þjóðveginum í myrkri og regni eða akandi í snjó er i-Activ fjórhjóladrif Mazda hannað til að veita öryggi og þægindi. Verkfræðingar Mazda hafa hannað vélbúnað og hugbúnað kerfisins fullkomlega. Kerfið beitir fyrirbyggjandi nálgun til að stjórna gripi á öllum fjórum hjólum.

i-Activ fjórhjóladrifið er fáanlegt með nýju M Hybrid SkyActiv X vélinni. Tæknin sameinar framúrskarandi akstursgetu með framúrskarandi eldsneytiseyðslu.

Mazda CX-30 samhljómur

Afburða aksturseiginleikar

Mazda CX-30 er búinn nýjustu tækni þar sem áherslan er á fádæma góða aksturseiginleika, sparneytni og áreiðanleika. Ítarlegar rannsóknir Mazda á hegðun og hreyfingu mannsins við akstur skilar sér í frábærri akstursupplifun. e-SkyActiv aksturstæknin heldur Mazda CX-30 sem límdum við götuna og bregst einstaklega vel við þínu aksturslagi eins og Mazda er einum lagið þar sem einstakt fjöðrunarkerfið og akstursstjórnunartæknin G-Vectoring Control Plus leika lykilhlutverk.

Þú finnur strax í fyrsta akstri hvernig dregið hefur verið úr óþarfa hávaða og titringi til að skapa afburða akstursupplifun. Komdu og prófaðu.

Mazda cx30 aftan

Ríkulegur búnaður

Ytri hönnun Mazda CX-30 er einstaklega fáguð þar sem flæðandi línur og efnisnotkun gæðaefna gefa bílnum einstaka lúxusásýnd. Þegar inn er komið upplifir þú magnaða hönnun innréttingar með samspili gæðaefna með einstakri áferð sem gælir við skynfærin. Mazda CX-30 býður upp á einstaklega hljóðlátt innra rými þar sem veghljóð hefur verið lágmarkað. Mazda CX-30 er ríkulega búin og má þar nefna bakkmyndavél, GPS vegaleiðsögn með Íslandskorti, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, blindpunktsaðvörun, lyklalaust aðgengi, stórum og skýrum skjá, stafrænt mælaborð, framrúðuskjár (head up display) og rafdrifinn afturhlera.  Komdu og skoðaðu.

Mazda cx-30 samskipti

Einstakur hljóðheimur

Hljóðkerfið í Mazda CX-30 er sérhannað. Hvort sem þú velur Sense, Sky eða Cosmo útfærslu þá er hljóðheimurinn einstakur.  Í Cosmo útgáfu Mazda CX-30 er hljóðkerfi sem hefur verið hannað í samvinnu við Bose® til að búa til þinn fullkomna hljóðheim. Tólf Bose® hátalarar umlykja allt farþegarýmið og skila  einstökum hljóðheim – bæði  á lágum og háum hljóðstyrk. Hlustaðu.

M CX30 Bose

Mazda Connect samskiptatæknin

Stafrænt mælaborð auðveldar aksturinn ásamt 8,8” skjánum sem er vel staðsettur til að trufla ekki sjónlínu ökumanns við aksturinn. Ný samskiptatækni Mazda-Connect er auðveld, hraðvirk og hjálpar þér að fylgjast með umferðinni. Bose hljómtækin skila einstökum hljómi með tólf hátölurum sem eru staðsettir á úthugsuðum stöðum í farþegarýminu.  Apple CarPlay, Android Auto og GPS vegaleiðsögn eru staðalbúnaður í nýjum Mazda CX-30. Vertu í sambandi.

Mazda cx30 ökumannsrymi

Mazda CX-30 hlaut eina hæstu einkunn sem gefin hefur verið, í öryggisprófun Euro NCAP

Mazda CX-30 setti nýtt met í öryggisprófun Euro NCAP, fékk 99 stig. „Það eru fáir öruggari staðir til að vera á en í Mazda CX-30“ segir í niðurstöðu prófdómara. Mazda CX-30 er ótrúlega vel búinn fjölda virkra öryggiskerfa til að koma í veg fyrir árekstur hvort sem það eru bílar í umferðinni eða gangandi eða hjólandi vegfarendur. Framúrskarandi öryggistækni Mazda, i-ACTIVSENCE verndar þig og þína. Kerfið er útbúið átta skynjurum sem aðstoða ökumann við að greina aðkallandi hættur í umhverfinu og láta ökumann vita um leið. Daglegur akstur í Mazda CX-30 verður enn auðveldari með framrúðuskjánum og bakkmyndavélinni. Einnig má nefna Smart City Brake stuðning sem er stöðugt að fylgjast með hraða bílsins og fjarlægð í næstu hindrun og bregst sjálfkrafa við óvæntum hindrunum. Veldu öryggi í Mazda CX-30.

Skapaður utan um þig

Fegurðin liggur í einfaldleikanum. Hugmyndafræðin baki hönnun á einstöku innra rými nýju kynslóðar Mazda er það er Japanir kalla „Yohaku“. Þægilegt rými fyrir ökumann og farþega, sem hafa meira frelsi til að hreyfa sig og njóta samverunnar og framúrskarandi útsýni yfir umheiminn. Nýjasta e-SkyActiv bíltækni Mazda CX-30 upplifir þú í fyrsta akstri. G-Vectoring Control Plus akstursstjórnunartæknin er önnur kynslóð þessa afar fullkomna kerfis. Kerfið skynjar fyrirætlanir ökumannsins eins og hesturinn skynjar knapann sem leiðir til einstakrar upplifunar ökumanns og farþega. Þú verður að prófa.

Mazda CX-30 ytra

M-Hybrid tækni Mazda

M-Hybrid tækni Mazda skilar framúrskarandi afköstum og eldsneytisnýtingu án málamiðlana.  M-Hybrid kerfið er alsjálfvirkt en það nýtir hreyfiorkuna sem verður til við hemlun og nýtist þegar á meira rafmagni þarf á að halda eins og  t.d við að ná aukni afli við upptak.  Með því að nýta þessa orku þarf vélin ekki að framleiða eins mikið rafmagn og því sparast eldsneyti. e-SkyActiv - G bensínvélin skilar lágum eyðslutölum fyrir bíl í þessum stærðarflokki þökk sé SkyActiv spartækni Mazda. e- SkyActiv vél Mazda CX-30  getur einnig slökkt á einum eða fleiri strokki í vélinni til að spara eldsneyti, hún er hönnuð til að skila þér krafti, framúrskarandi afköstum og stjórnun. e-SkyActiv - G 2,0 lítra bensínvélin er með hátt þjöppunarhlutfall eða 13:1  sem leiðir til minni losunar mengandi efna og betri eldsneytisnýtingu.

Mazda cx30 skyactiv

Byltingarkennd e-SKYACTIV-X vél

Mazda CX-30 er í boði með nýjasta tækniundri Mazda,  M-Hybrid X eða e-SkyActiv-X sem er byltingarkennd vél, sú fyrsta sinnar tegundar í fjöldaframleiddum bíl. Hún styðst við brunaferli – þjöppukveikingu (compression ignition) sem bílaiðnaðurinn er búinn að reyna að ná tökum á undanfarna tvo áratugi en eftir ítarlega rannsókna- og þróunarvinnu hefur Mazda leyst gátuna. M-Hybrid X vélin er aflmikil en jafnframt sérlega eyðslugrönn og með lága koltvísýringslosun.

Minnkaðu eyðslu og mengun með nýjum Mazda

Mazda Cx-30_par

Fullkominn samhljómur

Okkar markmið er að þú upplifir áreynslulausan akstur og einstaka akstursupplifun. Hvernig þér líður við akstur á Mazda CX-30 er okkar mælieining. Í huga okkar snýst akstur ekki bara um áfangastað, heldur líka að fá hjartað til að slá hraðar og að þú upplifir að elska að keyra.

Mazda 5 ára ábyrgð

Við hönnun Mazda CX-30 var ekkert slakað á gæðakröfum japanska bílaframleiðandans sem endurspeglast í 5 ára víðtækri ábyrgð. Framlengd verksmiðjuábyrgð gildir aðeins um bíla sem eru keyptir hjá Brimborg og er lengri ábyrgð háð því að bíllinn komi í þjónustu skv. skilmálum Mazda Motor Corporation og Brimborgar. Smelltu til að lesa meira um ábyrgð Brimborgar á Mazda bílum.

Skoðaðu úrvalið af Mazda CX-30 í Vefsýningarsal

Í Vefsýningarsal Brimborgar finnur þú Mazda CX-30 bíla á lager og í pöntun, finnur draumabílinn, sendir fyrirspurn og færð svar um hæl.

Einfaldaðu bílakaupin. Láttu okkur sjá um allt, uppítöku á gamla bílnum og fjármögnun

Langtímaleiga Mazda bíla

Hægt er að fá alla nýja Mazda bíla í langtímaleigu hjá Brimborg. Nánari upplýsingar um langtímaleiguverð og skilmála er að finna í Vefsýningarsal Brimborgar.

Helstu mál og stærðir

Helstu mál og stærðir
Lengd: 4.395 m
Breidd: 1.795 m
Hæð: 1.545 m
Stærð á skotti 430lítrar
Veghæð: 17.5 sentimetrar
Eigin þyngd: 1.471 kg
Dráttageta: 1300 kg

Fjölbreytt litaval

Mazda CX-30 Poly Metal GrayMazda CX-30 Machine GrayMazda CX-30 Jet BlackMazda CX-30 Deep Crystal BlueMazda CX-30 Sonic SilverMazda CX-30 Snowflake White PearlMazda CX-30 Soul Red Crystal Mazda CX-30 Arcitc WhiteMazda CX-30 Titanium Flash

Viltu vita meira um Mazda CX-30? Smellu á hnappinn hér fyrir neðan, fylltu út formið og sendu á söluráðgjafa okkar sem svarar þér um hæl.

Mazda cx-30_nyr