Sérpöntun

Veldu þinn lit

Mazda3 Hatchback er fáanlegur í mörgum fallegum og dýnamískum litum. Einstök Takuminuri-tækni okkar býr til áferð sem lætur þér líða eins og bíllinn hafi verið handmálaður af færum handverksmönnum. Þetta undirstrikar kraftmikinn Kodo-hönnunarstíl Mazda, sem færir þér nú úrval af töfrandi og kraftmiklum litum.

Einstök hönnun sem hreyfir við þér

Mazda3 Hatchback vekur öll skilningarvitin. Allt frá nautnalegum línum ytra byrðist til vandaðs farþegarýmis. Á veginum munu sportlegir aksturseiginleikar bílsins heilla jafnvel kröfuhörðustu ökumenn.

content image

EINSKÆR AKSTURSGLEÐI

Mazda3 Hatchback gerir allan daglegan akstur að spennandi upplifun. Þú færð framúrskarandi afköst þökk sé nýjustu Skyactiv vélunum okkar með Mazda M Hybrid tækni, sem og frábærri sparneytni og miklum viðbragðsflýti.

content image

SKEMMTILEGAR TENGINGAR

Mazda3 2024 kynnir betri tengingar og upplýsinga- og afþreyingarkerfi. Notaðu uppáhaldsforritin þín með þráðlausu Apple CarPlay® eða þráðlausu Android Auto™. Nú getur framrúðuskjárinn einnig sýnt leiðarvísi þegar þú notar leiðsögukerfi í símanum þínum.

content image

LISTAVERK Á HJÓLUM

Mazda3 Hatchback 2024 er sannkallað listaverk, hannaður til að vekja gleði og spennu í hvaða aðstæðum sem er. Bíllinn er gott dæmi um glæsilega japanska hönnun með aðlaðandi sveigjum sem endurspegla fallegt umhverfi.

Flottar útfærslur

PRIME-LINE
PRIME-LINE
CENTRE-LINE
HOMURA
PRIME-LINE
CENTRE-LINE
HOMURA

PRIME-LINE

Prime-Line útfærslan af Mazda3 Hatchback setur markið hátt með aðlaðandi staðalbúnaði, eins og fjarglægðarstillanlegum hraðastilli, framrúðuskjá og bakkmyndavél.

content image

CENTRE-LINE

Exclusive-Line útfærslan er sérlega glæsileg og þægileg með 18" álfelgum, þriggja þrepa hita í framsætum, loftkælingu á tveimur svæðum, lyklalausu aðgengi og hita undir rúðuþurrkum.

content image

HOMURA

Homura útfærslan af Mazda3 Hatchback er með auðþekkjanlegt útlit. 18" svartar álfelgur og svart sætisáklæði með rauðum saumum gera bílinn einstaklega flottan en hann er einnig ríkulega búinn, með lyklalaust aðgengi og margt fleira.

content image
content image
content image
content image

KYNNTU ÞÉR ALLT UM BÍLINN

Skoðaðu verðlistann eða hafðu samband. Þú getur svo bókað reynsluakstur bæði í Reykjavík og á Akureyri.