Ábyrgð Mazda bíla

Ábyrgð nýrra bíla á Íslandi skv. íslenskum lögum er í megindráttum þannig að kaupandi hefur rétt til að bera fram kvörtun um galla í bíl í allt að tvö ár frá afhendingu bifreiðarinnar. Það er lögbundið að veita einstaklingum (neytendum) þennan rétt en lögaðilar (fyrirtæki) geta samið sig frá lögbundinni ábyrgð bíla. Geri þeir það ekki gildir lögbundni tveggja ára kvörtunarrétturinn.

5 ára ábyrgð og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð

Mazda 5 ára ábyrgð 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu lógó

Brimborg býður nú alla nýja Mazda bíla sem keyptir eru hjá Brimborg með 5 ára ábyrgð og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir fólksbíla Mazda. Mazda bílar sem ganga að öllu leiti (100% hreinir rafbílar) eða einhverju leiti fyrir rafmagni (tengiltvinn rafbílar) og eru þ.a.l. með drifrafhlöðu þá er ábyrgðin á drifrafhlöðunni 8 ár eða að 160.000 km., hvort sem á undan kemur. Með reglulegri þjónustu og viðtækri verksmiðjuábyrgð nýrra Mazda bíla frá Brimborg tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.

Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að viðhalda bifreiðinni samkvæmt ferli framleiðanda eins og lýst er í eiganda og þjónustuhandbók bílsins. Mæta þarf árlega eða á 20.000 km fresti í þjónustu- og yfirbyggingarskoðun hvort sem á undan kemur tími eða km. Einnig mælir Mazda með milliskoðun á 6 mánaða eða 10.000 km fresti eftir því hvort kemur á undan km eða tími. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti. 

Athygli er vakin á því að 5 ára Mazda ábyrgð er skv. sérstökum skilmálum en tók gildi 15.3.2020 en fyrir þann tíma var ábyrgð Mazda bifreiða 3 ár skv. skilmálum.

Hvert sný ég mér varðandi ábyrgðarviðgerð?

Þú ferð með Mazda bílinn þinn ásamt eiganda- og þjónustuhandbók á Mazda verkstæði Brimborgar eða til viðurkennds þjónustuaðila Mazda utan Reykjavíkur. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Mazda geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.

Panta tíma í ábyrgðarviðgerð á verkstæði Mazda
Þú getur pantað tíma á verkstæði Mazda hér á vefnum. Þegar þú hefur bókað tíma þá færð þú mjög fljótlega staðfestingu í sms með nánari leiðbeiningum. Síðan munum við minna þig á tímann fjórum dögum áður en þú átt að mæta og aftur minnum við á daginn áður. Þú finnur lausan tíma, bókar tíma eða afbókar hjá verkstæði Mazda hér:

Bókaðu tíma

Afbóka

Mazda ábyrgð