MAZDA3 FRUMSÝNING Á LAUGARDAGINN

Við frumsýnum Mazda3 á laugardaginn í sýningarsal Mazda við Bíldshöfða 8. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri á að skoða glæsilega Mazda bíla og gæða sér á veitingum frá Lemon. Kíktu við.

Nýr Mazda3

Mazda3 sem síðustu ár hefur verið einn vinsælasti bíllinn á Íslandi er nú væntanlegur í nýrri og uppfærðri útfærslu.  Útlit og innrétting eru uppfærð ásamt ýmsum tæknilegum nýjungum.

Helstu breytingar eru nýr og breyttur framendi, ný framljós, nýtt grill og stuðari sem undirstrika sterkan og kröftugan karakter Mazda3. Í innra rými bílsins er nýtt mælaborð, uppfært margmiðlunarkerfi og rafdrifin handbremsa er nú staðalbúnaður Mazda 3. Þar með losnar mikið af plássi í miðjustokk bílsins sem nýtist sem aukið geymslurými.

Ný tækni - enn betri aksturseiginleikar - enn meiri þægindi

Með nýjum Mazda3 er kynnt til sögunnar nýtt og fullkomið stýrikerfi, svokallað „G-Vectoring Control „(GVC) sem gerir tengingu ökumanns og bíls enn nánari. GVC minnkar þörf ökumanns til að vera stöðugt að leiðrétta stýrisstefnu og minnkar þar með óumbeðnar hreyfingar hjá ökumanni og farþegum. Kerfið stuðlar þannig að enn betri aksturseiginleikum og eykur vellíðan allra farþega um borð. GVC kerfið stýrir ýmsum kerfum bílsins eins og vélartölvu, t.a.m með breytingu á togkrafti vélar, stýrissvörun og mörgu fleira.  Markmiðið er að ökutækið hafi sem best veggrip og  þyngdardreifing og G- þyngdarkraftar hafi sem minnst áhrif á ökuhæfni bíls og ökumanns.

Enn öruggari en áður

Með nýjum Mazda3 eru einnig kynntar uppfærslur á öryggiskerfi bílsins. Má þar nefna uppfært snjallneyðarhemlunarkerfi (Smart City Brake Support) sem nú greinir einnig gangandi umferð og bremsar sjálfvirkt ef stefnir í árekstur við ökutæki eða gangandi vegfarendur. 

Kynntu þér Mazda3  5dyra 

Kynntu þér Mazda3 4dyra